Jæja þá er maður búin að finna tíma til að fara aðeins í tölvuna hehe.

En héðan er allt fínt að frétta, við mæðgur búnar takið eftir BÚNAR að baka fyrir skírnina hennar litlu gellu. Ekkert smá stoltar sko:þ

En það var nú reyndar ekkert mál því við ætlum ekki að vera neitt öfgakenndar sko.

Þannig að lífið gengur sinn vanagang, Bödda litla systa og dætur hennar Jóna og Alma eru hér staddar og ætla að vera einhverja daga hér hjá okkur , á meðan að verið er að gera kofann á Kópaskeri (uhumm) tilbúinn. En ekki er vitað hversu lengi það verður

Veðrið er að gera mann vitlausann rétt sisona eins og vanalega maður er aldrei ánægður með það hehe


Hann gerir ekkert annað en að rigna, og ég er farin að verða hrædd um sumarbústaðaferðina okkar familíunnar

Ef ekkert gengur að fara að heyja þá verður lítið úr henni

Vonum bara það besta og grenjum ekki fyrirfram. Allir sprækir, engin veikindi og allt í því fína hér eins og vanalega hehe. Meira að segja ég fór í það í gærkveldi að læra dönsku ( ég er að taka dönskuáfanga í sumarfríinu, get ekki án skólans og Birnu verið.). Viti menn það var bara slatta gaman að lesa bókina hehe, byrjaði á henni í sauðburðinum og er að verða búin með hana

Jæja ég ætla að fara að gera eitthvað af viti hér, það eru svo fáir heima núna að maður veit ekki hvað maður á af sér að gera hehe, en það stendur ekki lengi þau koma öll heim aftur hehe.




Kveðja Hrefna og hafið það sem best